Atriðið var GEGGJAÐ !
Þetta var ekkert smá geggjað myndband og þið eigið hrós skilið

Klárlega langflottasta atriði kvöldsins by far.
KALPP FYRIR YKKUR
Kveðja,
Betsý Kr.
miðar á árshátíðina.
Varðandi flíspeysur þá legg ég inn pöntunina á föstudaginn nk. Ef þið ætlið að panta þá sendið mér allar upplýsingar um stærð og lit í email gudrunsn@hotmail.com hægt er að fá að máta peysurnar í búðinni.
kv. Guðrún s:772-0015
Party:)
Ég bý í lítilli íbúð en þröngt mega sáttir sytja:)
Endilega látið vita hverjar ætla að mæta svo ég viti ca hvað ég á von á mörgum:)
Hlakka til að fá ykkur!
Katrín Ösp
Klettastígur 4 A
8681666
Borðið okkar á árshátíðina...
Þarf að komast á hreint helst núna bara :)
Kveðja Elva Rún
Enn og aftur flíspeysur
bk. Guðrún. 772-0015
Nú þurfa allar að standa saman!!!
Fyrsta árið í heilbrigðisdeild á að sjá um skemmtiatriði á árshátíðinni (bæði staðarnemar og fjarnemar). Við erum nokkrar sem höfum lagt mikið á okkur við að taka upp video. Það hefur hinsvegar gengið mjög illa að klippa það og við þurfum að fá aðstoð við það. Áshátíðin er um helgina svo þetta þarf helst að gerast í dag. Það myndi kosta 300 kall á mann ef allir myndu borga. Þetta er mjög lítill peningur fyrir hvern og einn en ef þetta lendir allt á okkur sem tóku þetta að okkur þá er þetta mikill peningur:( Vinsamlegast sendið ykkar álit á þessu sem allra fyrst!
kv.
Katrín Ösp
ÁRSHÁTÍÐ !!!!!!!!
Fyrirpartý hjá Katrínu Ösp sé ég. En ég var að spá hvort við ætlum ekki að sitja allar saman?? allavega þá er búið að taka frá borð á nafninu EYGLÓ 25 sæti fjarnemar allir og við staðarnemar viljum auðvitað vera með líka.
Nóg er plássið fyrir okkur allar...
Commenta um hvort þið ætlið að mæta og sitjið með okkur bekknum. Þurfum að láta vita með endanlegann sætafjölda á föstdag held ég
Jóhanna Þorvarðar
Árshátið - party! :)
Nú er árshátíðin næstu helgi og mig langaði að vita hverjar stefna á að fara??? Einnig var ég að spá í að bjóða ykkur að kíkja til mín áður en árshátíðin hefst þar sem við getum hitað aðeins upp saman:) Hvernig líst ykkur á það????? Ég bý reyndar í lítilli íbúð en þröngt mega sáttir sytja;)
Endilega kommenta stelpur svo við sjáum hvernig stemmarinn er fyrir helginni:)
Bestu kveðjur
Katrín Ösp:)
hjúkkuhittingur
Mig langar rosalega mikið að við kíkjum eitthvað saman, eins og út að borða eða á kaffihús og fá sér einn kaldann....eða tvo.....eða þrjá!!!!
Er ekki áhugi fyrir því?
kv. Guðrún úr RVK
Endanlegt verð á peysunum.
Held að það sé ekki spurning hvort tilboðið við tökum í ljósi efnahagsaðstæðna, en ég held ég taki mér bessaleyfi að samþyggja tilboðið frá 66°norður.
Ef það er einhver algjörlega mótfallinn því þá kommentið um það, en eins og þið vitið þá er mjög erfitt að gera öllum þannig til geðs að 55 manns verði allir sammála, því miður.
En það verður s.s. í boði að velja einhverja af þessum 3 peysum sem er í linkum hér fyrir neðan. Þær sem vilja svarta velja hana og þær sem vilja í lit velja sér litinn.
Ég hafði svo hugsað mér að taka niður nöfnin ykkar aftur og stærð og típu af peysu niður á blað þegar ég kem norður núna í mars. Og, já, hvaða lit þið viljið á merkinguna.
Þær sem sjá sér ekki fært að hitta okkur fyrir norðan endilega sendið mér tölvupóst á gudrunsn@hotmail.com
Já, verðið á þessum peysum er 9.347 kr per peysa, merkt með VSK.
Varðandi athugasemdina hér fyrir neðan um svart efni, þá er þetta svarta efni sem við erum að tala um ekki venjulegt flís heldur sleipara efni og er alls ekki ryksía, ég hef átt svona peysu og dætur mínar og það sér aldrei á því. En eins og ég sagði hér fyrir ofan þá er hægt líka að velja hina típuna úr flísefninu og þá í nokkrum litum.
En vona að þið eigið æðislega helgi.
K. Guðrún
Flíspeysur
Kveðja, Soffía Hauks.
meira, meira flís, meira flís, meira fjörefni!!!!!
fyrsta peysan er úr þunnu flísefni sem er hrikalega þæginleg og gott að vinna í. Hinar peysurnar eru úr power stretch efninu sem ég elska út af lífinu af því að það er sama hvað maður þvær þær oft og hvað maður notar þær mikið, þær eru alltaf eins og nýjar
. En ég fæ verð í þær á morgun. Já, það verður hægt að fá að máta og skoða sýnishorn 1.-11.mars upp í skóla. Vorum að ræða það að það gæti verið agalega lekkert að fá sér t.d. svarta peysu með skærbleikum stöfum
eða skærgrænum eða gulum, eða bláum, eða kannski rauðum
En peysurnar frá cintamani sem við fengum tilboð í eru hér http://cintamani.is/?prodid=240 en við fengum fyrirspurn um þessa típu hér http://cintamani.is/?prodid=230 sem er mjööööög töff, en miklu miklu dýrari. Held að flestir séu að spara í kreppunni þannig að ég hef ekki beðið um tilboð í þessar.
Er komin með 53 stk hjúkkur og iðjur á skrá, en það er enn hægt að skrá sig ef flr vilja vera með

hvað segið þið stelpur! líst ykkur eitthvað á þetta?
kv. Guðrún og Jóhanna
Nokkur ótrúleg læknamistök
Mistökin gerast allastaðar.
Langaði að deila þessu með ykkur, það er áhugavert að skoða þetta
Kveðja
Betsý Kr

http://b2.is/?sida=tengill&id=309802
dansi dans:)
Við vorum búnar að tala við einhverjar úr bekknum en ákváðum að henda þessu hérna inn til þess að allir sæju þetta:) Við erum búin að vera að mynda skemmtiatriðið okkar og það lítur mjög vel út! En okkur vantar allan bekkinn til þess að mæta og dansa við eitt lag saman :) Myndavélin mun fyrst og fremst snúa að leikurunum okkar sem eru þau Guðlaug og Björn Ingi en okkur vantar fleiri til að vera að dansa í bakgrunn við þetta snilldar lag:
http://www.youtube.com/watch?v=YJ2uxUajUN4
Ekki vera feimnar stelpur! Guðlaug og Björn Ingi eru að standa sig rosalega vel og við hinar getum alveg dansað við eitt lag með þeim :) Þetta verður semsagt á morgun á kaffi Akureyri, eftir klukkan þrjú, en hvaða tími nákvæmlega hentar ykkur best til þess að sem flestar geti mætt?????
Bestu kveðjur
Katrín og Jóhanna.
Meira varðandi flíspeysur
Ég er að fara á fund með sölustjóra 66°norður í vikunni og þá mun ég fá verð og sýnishorn frá þeim til að taka með mér norður í fjarnemavikuna 1.-11. mars. Þá verður hægt að máta sniðið, stærðir og finna sér lit.
Ég veit að þeir ætla að bjóða okkur betra verð en cintamani:)) En ef einhverjar vilja þá ætti ég að geta fengið sýnishorn hjá Cintamani líka:) Þeir buðu mér það reyndar ekki en ég gæti ath með það.
En ég er komin með yfir 40 pantanir, sem er mjög flott:)))) En það er ekki of seint að panta ef þið eruð ekki búnar.
bk. Guðrún.
