Bekkurinn bloggar

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: The hot nurse
  • Staður: Akureyri
  • Annað: Hjúkkunemar við Háskólann á Akureyri sem hófu nám haustið 2008 og munu útskrifast vorið 2012 :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

A.T.H.

03. september 2009 klukkan 09:21
Ég sendi Erleni Steinari bréf um það hve mikils virði það er fyrir okkur (sérstaklega fjarnema) að fyrirlestrar séu teknir upp, og hann sagðist taka þessu bréfi með jákvæðu hugarfari.
En sagði mér jafnframt að best væri að við myndum setja pressu á þetta sem heild bekkurinn. Þ.e. að við myndum allar senda bréf eða eitt bréf fyrir hönd bekkjarins.
Endilega kommentið

Bestu kveðjur,
Birna Katrín

Pantanir á hlustunarpípum

02. september 2009 klukkan 19:55
Sælar skvísur.
Ég held að það sé einfaldast fyrir alla ef við sjáum bara um að panta hlustunarpípurnar hver fyrir sig Smile
Það geta t.d. tekið sig nokkrar saman og pantað þannig að sendingakostaður deilist niður.
Þið hafið þá val um að panta af
WWW.AMAZON.COM eða einfaldlega að panta frá WWW.VISTOR.Is  
Hægt er að panta í gegnum email og einnig með því að hringja og panta.
Meilið er.
Ásthildur Björnsdóttir
Sölufulltrúi 3M Littmann
asthildur@vistor.is

Því miður varð misskilningur á því hvaða litir eru í boði. Þeir litir sem til eru í Littmann classic 2 eru:

Black
Burgundy
Navy Blue
Hunter green
Caribbean Blue
Gray
Ceil Blue
Orange

Vonandi takið þið sem flestar vel í þetta fyrirkomulag, ég held að það sé frekar erfitt fyrir einhvern 1-2 að taka sig saman og panta fyrir hópinn þar sem margir litir eru í boði sem og nöfn, þannig að misskilningur gæti auðveldlega komið upp og allt farið í flækju.
Með von um góð viðbrögð Wink

Í lokin minni ég á tilboðið

Tilboðsverð til hjúkrunarnema

á Littmann hlustunarpípum!

Gildir til 30. september! 
 
 

Fullt verð m.Vsk.    Tilboðsverð m.Vsk 

Merkispjald    1.150       1.000 

Classic II S.E  17.059          14.500 

Cardiology III  41.765    35.500

Cardiology STC 46.118    39.200

Master Cardiology  60.823     51.700      

Kveðja,

Betsý Kr. :)

Hlustunarpípur

01. september 2009 klukkan 11:19
Sælar hjúkkuskvísur Laughing

Í tíma hjá IT í dag kom fram að hann mælti með því að við myndum fjárfesta okkur í hlustunarpípum, það væri eign til framtíðar sem ætti eftir að koma sér vel í klínikini hjá okkur.

Hann mælti sérstaklega með hlustunarpípum sem heita Littmann Classic II sem hægt er að panta af
www.amazon.com og eins hægt að kaupa frá fyrirtæki í R.V.K. sem heitir Vistor - www.vistor.is.

Á amazon kosta þær u.þ.b. 9-10 þúsund sem er fyrir utan sendingarkostnað.

Hinsvegar hringdi ég suður í Vistor og talaði þar við Ásthildi Björnsdóttiur, Sölu- og markaðsfulltrúa og sagðist hún eiga þessar hlustunarpípur til á lager.
(IT mælti sérstaklega með þessari tegund sem og hún).

Hún sendi mér tilboð til hjúkrunarnema sem hljóðar svo:

Tilboðsverð til hjúkrunarnema

á Littmann hlustunarpípum!

Gildir til 30. september!

 Fullt verð m.Vsk
.                  Tilboðsverð m.Vsk 

              Merkispjald    1.150             1.000 

              Classic II S.E  17.059          14.500 

(einnig hægt að fá fleiri týpur sem eru dýrari - voru s.s. einnig á tilboði).

Littmann hlustunarpípurnar er hægt að fá í ýmsum litum og læt ég hér fylgja með litaspjald. Allir litir á þessu spjaldi eru í boði nema Seafoam Green
(en NB! Það er hægt að panta þann lit ef einhver vill Smile
Hér er litaspjaldið. 



Einnig er í boði að kaupa merkispjöld á hlustunarpípurnar ef einhver hefði áhuga.



Jæja dömur þá er bara spurning hvað þið viljið gera og hvernig ykkur lýst á tilboðið. Ég er ekki viss um að það borgi sig að panta þær að utan, en endilega látið skoðun ykkar í ljós.
Ég persónulega væri til í að panta mér að sunnan Smile en endilega látið ljós ykkar skína !!

Kveðja,
Betsý Kr.

Heitu skvísur

12. ágúst 2009 klukkan 19:20
Nú líður senn að nýrri önn hjá okkur, spenningurinn örugglega farinn að segja til sín =)

Ég var nú bara að spegúlera hvort þið vissuð eitthvað hvort við eigum ekkert von á því að fá bókalista? Það er komið inn fyrir félagsfræðina en ekki hitt? Það var svo mikið bókahallæri um áramótin, leiðinlegt að lenda aftur í veseni....

Svo var ég líka að spegúlera hvort það væru einhverjir "fallnir" félagar, þ.e. hvort það væru einhverjar sem ætluðu ekki að mæta með okkur í haust? hvort sem þær væru að fara í frí eða hættar....

Annars hlakka ég til að sjá ykkur allar aftur =) Skemmtilegir tímar framundan !

Kv. Nanna (Jóhanna K.G)

Jæja

07. maí 2009 klukkan 11:31
Eigum við að fara eitthvað í hádeginu eftir prófið á morgun?

Reynum að hittast og fá gleðitilfinninguna sem að fylgir því að vera loksins búnar með fyrsta árið!

( kannski maður fái sér einn kaldan þessvegna með matnum sko!) En, þá er það spurningin, við þyrftum helst að ákveða þetta í dag og hvar... og hve margar ca líka...

Koma svooooo

Ég t.d. væri til í að kíkja á strikið...

Hvað segið þið?

Sólveig aaaalveg að verða búin með fyrsta árið! 

1.árið senn búið :)

06. maí 2009 klukkan 18:30

Ótrúlegt en satt þá er 1.árinu hjá okkur að ljúka, þetta er búið að vera ótrúlega fljótt að líða og skemmtilegt ár Laughing
Áður en við vitum af verðum við orðnar hjúkrunarfræðingar.

Á þeim nótunum að þá hafði ég samband við Hjúkrunarfélag íslands til að kanna hvort við ættum rétt á inngangi í félagið sem nemar.
Ég fékk sent bréf sem ég ætla að skella hér inn og ég hvet ykkur allar til að lesa það og skella ykkur í félagið Wink 

Bestu kveðjur,
Betsý Kr. - sem er komin í svakalegan sumargír Cool
 

 

 Ágæti hjúkrunarfræðinemi.

Á undanförnum tveimur fulltrúaþingum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur verið fjallað um mögulega aðild hjúkrunarfræðinema að félaginu.  Lögum félagsins hefur nú verið breytt á þann veg sem heimilar hjúkrunarfræðinemum að gerast aukaaðilar að félaginu.  Í 3. gr. laganna segir nú: „Rétt til aukaaðildar að félaginu eiga nemendur í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, sem lokið hafa 1. námsári, á meðan á námi stendur að fenginni staðfestingu frá viðkomandi skóla á að námi sé framhaldið".

 

Rökin fyrir þessari breytingu eru einkum að auka tengsl hjúkrunarfræðinga og nema, að efla félagsvitund hjúkrunarfræðinema innan sinnar fagstéttar og síðan að opna þann möguleika að félagið semji um kaup og kjör fyrir hjúkrunarfræðinema, sem aftur getur verið ávinningur fyrir alla félagsmenn.

 

Með þessu bréfi er ætlunin að kynna þér möguleikana á að gerast aukaaðili að Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og því allra helsta sem felst í slíkri aðild, bæði réttindi og skyldur aukaaðila.  Til frekari upplýsingar er bent á vefsvæði félagsins www.hjukrun.is

 

Samkvæmt lögum félagsins hafa félagsmenn með aukaaðild málfrelsi og tillögurétt á fundum í félaginu.  Allir félagsmenn hafa einnig rétt til setu á fundum og ráðstefnum sem félagið stendur fyrir.  Allir félagsmenn eiga rétt á ráðgjöf um málefni hjúkrunar og önnur fagleg málefni sem félagið vinnur að.

Þeir aukaaðilar sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningi félagsins (ef félagið fær samningsrétt fyrir hjúkrunarfræðinema) eiga rétt á því að félagið gæti hagsmuna þeirra gagnvart vinnuveitanda og yfirvöldum að því leyti sem það samrýmist tilgangi félagsins.  Allir félagsmenn eiga rétt á fagtímariti félagsins, Tímariti hjúkrunarfræðinga, sem gefið er út 5 sinnum á ári.  Tímaritið er sent heim til allra félagsmanna þeim að kostnaðarlausu.

 

Öllum félagsmönnum ber að virða lög félagsins, fundarsköp, fundarsamþykktir og ákvarðanir stjórnar svo fremi samþykktirnar eða ákvarðanirnar brjóti ekki í bága við lög félagsins eða landslög.  Þá er félagsmönnum skylt að greiða það félagsgjald sem ákveðið hefur verið samkvæmt lögum félagsins.  Félagsgjald fyrir aukaaðila er nú kr. 2.500- á ári.

 

Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er opin alla virka daga kl. 9:00-17:00.  Þangað geta félagsmenn leitað með erindi og fyrirspurnir í síma 540-6400, í netfangið hjukrun@hjukrun.is eða komið á staðinn.
Starfsfólk félagsins leggur metnað sinn í að félagsmönnum líði vel í húsnæði félagsins.  Fundarsalir félagsins standa félagsmönnum til boða án endurgjalds fyrir fundi og aðra faglega starfsemi.  Þar sem aðsóknin er mikil er nauðsynlegt að panta salina með góðum fyrirvara.  Til félagsins berast mörg tímarit frá félögum hjúkrunarfræðinga erlendis.  Tímaritin eru ekki til útlána en hægt er að lesa þau á staðnum eða ljósrita úr þeim.

 

Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur þess m.a. að vera málsvari hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga.  Félagið gætir hagsmuna hjúkrunarfræðinga á tvennan hátt.  Annars vegar með því að vinna að framgangi hjúkrunar í stefnumótun og ákvarðanatöku í heilbrigðismálum og hins vegar með því að semja um og tryggja réttindi og kjör félagsmanna gagnvart vinnuveitendum og yfirvöldum.  Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur enn sem komið er ekki samningsumboð fyrir aukaaðila en verði aukaaðilar nógu margir stendur vilji stjórnar til þess að félagið taki það verkefni að sér.

 

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur um árabil verið aðili að Alþjóðasambandi hjúkrunarfræðinga (ICN), Samvinnu hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN), Fastanefnd ESB um hjúkrunarmál (PCN) og í Evrópusamstarfi um hjúkrunarrannsóknir (WENR).  Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styrkir einn fulltrúa hjúkrunarnema héðan á fundi NNSK (Nordiske sykepleierstudenters kontaktforum) sem haldnir eru tvisvar á ári og kostar SSN annan stúdent frá hverju Norðurlandanna á fundina.

 

Eins og að framan greinir er þessu bréfi ætlað að kynna allra helstu þættina í starfi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, þau réttindi og þær skyldur sem fylgja aukaaðild að félaginu.  Á næstunni munu formaður félagsins, hjúkrunarfræðingur þess og hagfræðingur boða til fundar með hjúkrunarfræðinemum á skólatíma til að kynna félagið enn frekar og svara þeim spurningum sem kunna að brenna á hjúkrunarfræðinemum.  Ég vonast til þess að þú sjáir þér fært að mæta á kynningarfundinn og ákveðir í framhaldinu að gerast aukaaðili að Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

 

 

Með félagskveðju,

 

 

F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

 

Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður

Próflokadjamm

05. maí 2009 klukkan 15:32
Sælar stúlkur! Ég var búin að senda póst á facebook en það var ekki að virka nógu vel þannig að ég skrifa bara hér. Við erum að spá í próflokadjammið á föstudaginn, væri ekki gaman að skrapa saman í smá púkk og kaupa í bollu eða eitthvað svoleiðis og kannski snakk líka, hittast síðan í heimahúsi og djamma fram á morgun? ;) það eru kannski ekki allir til í djamm á föstudag, því það eru náttúrlega allir búnir á því eftir þessa törn.. en það ætla flestir að djamma þá heyrist mér, svo er líka próflokadjamm Eir á kaffi Ak á föstudag.. Endilega kommetið á þetta :) Katrín og Anna Karen

Tölfræðipróf

30. apríl 2009 klukkan 17:12
Jæja stelpur, tölfræðiprófið búið og það var auðvitað sami fíflagangurinn þar og hefur verið þessa önn...

M.a. vantaði 3 töflur með í prófið...

Enginn svarmöguleiki var réttur við 5. spurningu...

Og seinast en ekki síst var formúla sem við þurftum að nota við úrlausn tveggja spurninga vitlaus...

Ef einhver fellur í þessu fagi þá er ég meira en til í að skrifa undir kæru á þessum áfanga og vona að það séu fleiri.  Ég vona að ég nái, en er alls ekki viss.  Fannst þetta próf orðað asnalega + ég stressaði öll upp þar sem ég var búin að reyna við spurningu 5 og reyna að nota formúluna áður en við fengum að vita með villurnar.

Kennslan var vægast sagt slæm í þessum áfanga frá upphafi, alla vega hef ég aldrei lent í því áður í háskólanámi að kennarinn geti ekki haldið áfram með kennslustundina því hún þurfi að undirbúa sig betur með efnið því hún er ekki alveg klár á því sjálf...

Með von um viðbrögð,

Nanna

10 ástæður til að elska okkur!

21. apríl 2009 klukkan 21:02

Myndbandið ;)

18. mars 2009 klukkan 22:47
Hæ allar:)Ég kann ekki að setja inn myndbandið hérna svo þið verðið bara að kíkja á það á facebookinu mínu;) Katrín Ösp Jónsdóttir

 

Hætt við flíspeysurnar!

12. mars 2009 klukkan 19:36
Sælar.

Þar sem 60 manns voru búnar að skrá sig á listann í byrjun en núna er aðeins komnar á skrá 20 stk af peysum þá ætla ég að hætta við þetta. Tilboðið miðaðist við upphaflega tölu og því ekki hægt halda áfram með þetta þar sem 40 manns hættu við.

En auðvitað getið þið haft sjálfar samband við annað hvort cintamani eða 66°north og græjað þetta sjálfar, en þurfið örugglega að semja sjálfar um afslátt.


Vona að þær sem voru búnar að panta sýnið þessu skilning.


Bestu kveðjur, Guðrún.

Volare- aloe vera

12. mars 2009 klukkan 08:49
Er einhver stemmari í hópnum fyrir því að koma á volare kynningu?
 

SÍÐASTI SJENS!!!!!

11. mars 2009 klukkan 17:34
Ég legg inn pöntun í flíspeysurnar á föstudaginn. Síðasti sjens að panta. Vinsamlegast sendið mér mail á gudrunsn@hotmail.com ef þið viljið peysu.

kv, Guðrún.

Skæri,pjang, pennaklemmur.... meira

09. mars 2009 klukkan 21:48

Kata á 3ja ári verður uppí matsal í skólanum á morgun að afgreiða skærin og það (sjá færslu hér fyrir neðan) kl 12 30. Vinsamlegast mætið með reiðufé og helst akkurat fyrir upphæðinni ykkar. 

Ef einhverjar eiga eftir að skrá sig á listann þá getið þið komið uppí skóla á morgun á þessum tíma og pantað

Kv. Jóhanna Þ.

Skæri,pjang, pennaklemmur....

09. mars 2009 klukkan 08:42

Í dag er ég með lista yfir bekkjarskvísurnar  sem hafa áhuga á að kaupa skæri, pjang og pennaklemmur.
3ja árs hjúkkur eru með þetta til sölu. Verðinu er stillt í hóf og er eftirfarandi

Skæri 500 krónur
Pjang 700 krónur
Pennaklemma 1000 krónur
Pennaljós- uppselt þvi miður

Þið sem eru ekki í skólanum í dag en hafa áhuga á að kaupa mega hafa samband við mig í síma 8486000 og ég skrái ykkur niður.

Jóhanna

Könnun

Hvernig flíspeysu myndirðu vilja fá?